|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|
12.09.2009 11:08:37 / gaui
Ég reyni eins og mögulegt er að uppfæra heimasíðu MND félagsins og svo er ég eins og aðrir á facebook. GS
»
15.01.2009 22:48:47 / gaui
opup('/mm/frettir/popup/mynd.html?imgid=481754;nid=1392171', 670, 418, 'yes')"> Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Árni Sæberg Innlent | mbl.is | 15.1.2009 | 19:17 30% fyrirtækja í hættuVilhjálmur segir, að bankarnir gegni lykilhlutverki við uppstokkun fyrirtækja. Þeir muni hafa forystu í endurskipulagningu á fjárhag þeirra og í mörgum tilvikum leggja þeim til nýtt eigið fé. Viðskiptavinir bankanna í atvinnulífinu gagnrýni að ákvarðanataka bankannasé hvergi nærri nógu virk og markviss. Mál dragist, skipt sé oft um skoðun, þekkingu á einföldum þáttum skorti, starfsmenn fælist ábyrgð og stefnumótun sé ábótavant. „Þessi gagnrýni skýrist að stórum hluta af því að efnahagsreikningur hinna nýju banka liggur ekki fyrir og þeir vita ekki hvernig þeir sjálfir standa og ennfremur hjálpar það ekki til að bankarnir eru ríkisbankar með öllu því stefnuleysi sem slíku fyrirkomulagi óhjákvæmilega fylgir," segir Vilhjálmur í leiðara í fréttabréfi SA í dag. Hann segir, að verkefni bankanna sé ærið og afar mikilvægt við uppstokkun atvinnulífsins. Eignarhald fyrirtækja megi ekki festast á höndum bankanna heldur verði að vinna markvisst að því að koma fyrirtækjum í hendur einstaklinga á nýjan leik. Þá hjálpi háir vextir ekki bönkunum. Enginn eðlilegur rekstur standir undir 25% vöxtum og þaðan af hærri né heldur tveggja stafa vaxtatölum á verðtryggðum lánum. Vandamálin hrannist því upp í bönkunum í stóran afskriftahaug sem einhvern tímann þurfi að moka burt. Erlend lán atvinnulífsins skapi líka óviðráðanleg vandamál fái bankarnir ekki eðlilegan aðgang að erlendu lánsfé. „Nauðsynlegt er að skýra stöðu bankanna sem fyrst. Óvissan eykur á vandann, tefur ákvarðanir og eykur stefnuleysi. Lækka verður vextina til þess að minnka vandann því að fyrirsjáanleg útlánatöp með þessum háu vöxtum er ekkert annað en uppskrift að hruni nýju bankanna þá loksins þegar og ef þeir komast af stað," segir Vilhjálmur Egilsson.
»
28.12.2008 11:13:03 / gaui
Við áttum frábær jól á Berjavöllunum. Leti, bókalestur og frábær matur. Gjafir eru hluti jólanna og þó að samveran sé besta gjöfin eru pakkarnir spennandi. Meðal þess sem ég fékk var nýr giftingahringur. Hinir höfðu "hlaupið" og pössuðu illa svo endurnýjunar var þörf. Nú er maður orðinn normal aftur. Bækur fékk ég og meðal þeirra var ljóðabókin eftir félaga okkar Ólaf Ragnarsson. Ég tel þessa texta tæra snilld og mannbætandi að lesa ljóðin hans. Nú tekur við áframhaldandi leti og lestur svo maður nýtur lífsins. Vona að fleiri geri það. GS
»
27.12.2008 10:44:54 / gaui
Greiningadeild Kaupþings spáði í upphafi ársins að úrvalsvísitalan myndi standa í tæplega 5700 stigum í lok þessa árs. Niðurstaðan er hinsvegar að vísitalan er 20 sinnum lægri en spáin gerði ráð fyrir. Segja má að upphaf ársins hafi gefið vísbendingar um hvað koma skyldi. Hlutabréf snar lækkuðu í verði, til dæmis nam lækkunin í kauphöll Íslands rúmlega 10,5% fyrstu dagana sem opið var. Sérfræðingar töldu þessa lækkun tímabundna, og til að mynda hafði forstöðumaður greiningadeildar Lansbankans þetta um málið að segja: „Edda Rós Karlsdóttir: Ég held að það sé of fljótt að, að spá einhverju um hvort botninum sé náð en honum er væntanlega náð bráðlega.“
Sama dag sagði greiningadeild Glitnis að verð á hlutabréfum gæti fallið áfram en engu að síður væri búist við 10 til 20% hækkun á úrvalsvísitölunni á árinu. Þann dag stóð úrvalsvísitalan í 5.667 stigum en lækkaði síðan nokkuð næstu daga á eftir. 19. janúar spáði greiningadeild Kaupþings að úrvalsvísitalan myndi ná 6.850 stigum í lok ársins. Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings: „Það er verið að verðleggja banka mjög ódýrt miðað við hagnað núna. Og við teljum að þetta sé ástand sem geti ekki staðist til lengdar og að bankar í Skandinavíu að það muni verða ákveðin leiðrétting á þeirra gengi á þessu ári og það muni toga íslensku bankana með. Og það má segja að það sé í rauninni grunnurinn að þessari spá.“ Framan af ári þótti einsýnt að lækkandi gengi hlutabréfa hér á landi stafaði af einhverskonar misskilningi. Rætt var um að koma réttum upplýsingum um íslenskt efnahagslíf á framfæri Sagt var frá því að forsætisráðherra hefur boðað bankastjóra stóru bankanna til fundar við sig. Ræða ætti viðbrögð við versnandi stöðu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og hvernig koma mætti réttum upplýsingum um íslenskt efnahagslíf á framfæri erlendis. Geir H. Haarde: „Það er alveg ljóst að það er eru ranghugmyndir og vitlausar upplýsingar og rangtúlkanir í gangi hvað varðar okkar efnahagslíf og einnig stöðu bankanna og ef að við getum gert eitthvað sameiginlega til að takast á við þetta vandamál að þá er sjálfsagt að gera það. “ Allt kom fyrir ekki lækkunin hélt áfram. Úrvalsvísitalan stendur í dag í 347 stigum. Þetta er um 20 sinnum lægra gengi en spá Kaupþings gerði ráð fyrir.
»
16.12.2008 17:15:09 / gaui

Síðasta verk Rúnars Júlíussonar, fyrir andlátið, var að skemmta MND veikum á fundi og um leið færa Fjölskylduhjálp Íslands og Hjálparstarfi Kirkjunnar geisladiska og eitt og annað smálegt sem notast skal sem jólagjafir fyrir skjólstæðinga þessara félaga. Valur Höskuldsson, ljóðskáld, færði sömu aðilum ljóðabækur eftir sjálfan sig.
Á myndinni frá vinstri eru: Kóngurinn Rúnar heitinn Júlíusson, Guðjón formaður MND félagsins, Anna varaformaður Fjölskylduhjálpar Íslands, Valur Höskuldsson ljóðskáld og Sr. Gunnar fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.
»
13.12.2008 09:16:09 / gaui
Amma hefur nú fengið hvíld frá öllu sem hrjáð hefur hana undanfarin ár.
Mikið gagn og gaman hafði ég af heimsóknum mínum til ömmu á Höfða. Þar leið henni vel og þar er frábært starfsfólk sem hugsaði af kærleika um hana. Mest fjörið var að ræða gamla daga, fótbolta og spila með henni einstaka lottó, þó hún væri löngu hætt að spila lottó að eigin sögn. Þá samþykkti hún „treglega“ að kaupa einn svona í síðasta skiptið í einhver tugi skipta. Þó ég væri akandi á hjólastól í síðustu heimsóknum til hennar var það engin fötlun, en að ég héldi með Chelsea var mjög alvarleg fötlun í hennar augum. Hún var Púllari sú gamla og fylgdist með enska boltanum og þeim íslenska eins og hún best gat. Ekki þarf að taka fram að þetta villuráf hennar í enska boltanum var hennar eini galli að mínu mati. En ansi hefði verið mikið leiðinlegra að heimsækja hana ef við hefðum alltaf verið sammála. Amma hefur nú fengið kærkomna hvíld og minningar um hana og afa munu ylja mér og fjölskyldunni um mörg komandi ár. GS
»
07.12.2008 18:27:54 / gaui
Get ekki orða bundist yfir fréttum undanfarna daga um símakostnað Forsetaembættisins. Reyndar hljóma fyrirsagnir þannig að Forsetinn einn hafi talað í síma embættisins. Er það þetta sem skiftir máli í dag? Forsetaembættið hefur verið líknarfélögum ómetanlegur stuðningur undanfarin ár. Áhugi þeirra og aðstoð vegna málefna okkar hefur skipt verulegu máli. Stuðningur Forsetans hefur vakið athygli innanlands og utan. Einhver símtala embættisins hafa örugglega verið vegna málefna tengdum MND félaginu og er ég þakklátur fyrir það og biðst afsökunar á þeim hluta kostnaðar sem olli þessum fáránlega fréttaflutningi. Eru fjölmiðlar hættir að þora að skoða alvöru mál sem brenna á fólki í dag. Mál sem ég tel mikilvægari en símakjaftæði eru t.d.: Stendur til að rukka fyrir komu barna á slysadeild? Loforð um bætta þjónustu á taugadeild LSH er komið á svikalista. Ástand á geðdeildum. Hve margir eru fastir inná spítölum vegna ráðaleysis félagskerfisins? Hvar eru útrásarvíkingarnir í dag og hvernig eru þeir að nota peningana okkar? Á að standa vörð um velferðarkerfið? Ég skora á fjölmiðlafólk að fjalla um alvörumál og reyna eins og hægt er að segja frá jákvæðum atburðum, jafnt og hörmungum. GS
»
05.12.2008 10:55:09 / gaui
opup('/mm/frettir/popup/mynd.html?imgid=484968;nid=1384020', 670, 467, 'yes')"> mbl.is/Kristinn Veröld/Fólk | mbl.is | 5.12.2008 | 09:45 Rúnar Júlíusson látinnÚtgáfufyrirtæki hans Geimsteinn hélt árlega útgáfukynningu sína á veitingastaðnum Ránni í gærkvöld þar sem listafólk útgáfunnar var saman komið. Rúnar var að fara á svið til að syngja og var að teygja sig eftir gítarnum þegar hann kenndi sér meins. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann andaðist. Guðmundur Rúnar Júlíusson fæddist í Keflavík 13. apríl 1945, sonur Júlíusar Eggertssonar múrarameistara og Guðrúnar Stefánsdóttur Bergmann. Rúnar varð kunnur knattspyrnumaður á unglingsárum sínum og lék með Keflavíkurliðinu þar til hann sneri sér að tónlist. Rúnar var bassaleikari í Hljómum sem varð landsþekkt eftir að sveitin kom fram í fyrsta sinn 5. október 1963 í Krossinum í Innri Njarðvík. Rúnar varð fljótlega vinsæll söngvari og tónlistarmaður sem vakti aðdáun hvar sem hann kom. Hann starfaði í Hljómum þar til hann stofnaði Trúbrot með félögum sínum vorið 1969. Þegar Trúbrot hætti 1973 voru Hljómar endurreistir og stuttu seinna kom Lónlí blú bojs fram á sjónarsviðið. Rúnar og Gunnar Þórðarson stofnuðu Hljóma útgáfuna um þessar mundir sem gaf m.a. út plötur Lónlí Blú Bojs. Rúnar og María Baldursdóttir lífstíðarförunautur hans stofnuðu hljómplötuútgáfuna Geimstein árið 1976, sem er í dag elsta hljómplötuútgáfa landsins með samfellda sögu. Rúnar gerði nokkrar sólóplötur og starfrækti næstu árin hljómsveitina Geimstein. Hann stofnaði Áhöfnina á Halastjörnunni með Gylfa Ægissyni 1980 en starfrækti lengst af Hljómsveit Rúnars Júlíussonar, sem hét undir það síðasta Rokksveit Rúnars Júlíussonar. Hann stofnaði GCD ásamt Bubba Morthens 1991. Sú hljómsveit gaf út þrjár plötur sem nutu mjög mikilla vinsælda. Árið 1982 settu Rúnar og María á laggirnar hljóðver á heimili sínu Skólavegi 12 í Keflavík. Það nefndist í daglegu tali Upptökuheimilið Geimsteinn. Rúnar starfrækti hljóðverið og útgáfufyrirtækið til hinsta dags. Hann gaf út um 250 hljómplötur með fjölda listamanna. Þar á meðal má nefna hljómsveitina Geimstein, Áhöfnina á Halastjörnunni, Maríu Baldursdóttur, Bjartmar Guðlaugsson, Þóri Baldursson, Deep Jimi and the Zep Creams, Hjálma og Baggalút. Fyrir fáeinum dögum kom út þriggja platna safnútgáfan Söngvar um lífið 1966-2008 þar sem Rúnar flytur 72 þekktustu lögin frá ferlinum. Rúnar var einn dáðasti rokkari landsins og kom ævisaga hans Hr. rokk út 2005, sem Ásgeir Tómasson skrásetti. Rúnar Júlíusson lætur eftir sig eiginkonuna Maríu Baldursdóttur, synina Baldur og Júlíus og 6 barnabörn.
»
04.12.2008 10:32:38 / gaui
Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2008 3. Des Herra forseti Ólafur Ragnar Grímsson, dómnefnd og aðrir gestir. Að fá Hvatningarverðlaun ÖBÍ er mér dýrmætur heiður. Fyrst og fremst viðurkenning á því að brasið á manni alla daga er einhvers virði. En ég á þetta ekki einn. Einn get ég ekkert. Íslendingar flestir eiga þetta með mér, fjölskylda mín, vinir, vinnufélagar og að ógleymdum Evald Krog. Ekki má gleyma varðhundum kerfana sem ég slæst við alla daga. Þeir greyin gera mér þó gerlegt að taka þátt í lífinu og m.a. rífa kjaft við þau. En öll breyting krefst samstarfs og málamiðlana, þau gefa eftir en ég ekki. Ég mun ótrauður halda starfi mínu áfram og vonandi mjaka málum á réttan veg svo lengi sem ég hef ykkar stuðning. Takk fyrir
»
26.11.2008 21:52:06 / gaui
NÚ ER svo komið að allir Íslendingar, ungir sem aldnir, liggja undir því ámæli að vera þjófar og svindlarar af verstu gerð. Þetta mun verða svo þar til þeir aðilar koma fram sem ábyrgðina bera og viðurkenna afglöp sín opinberlega. Gildir þá einu hvort menn eru þessa dagana í skjóli verkalýðsfélaga, embætta eða undir verndarvæng núverandi stjórnvalda. Hreinsun og um leið endurnýjun í öllu fjármálakerfinu er algerlega nauðsynleg til endurnýjunar á trausti okkar Íslendinga. Forgangsröðun í hinu nýja Íslandi verður að vera skýr. Jakkafatamömmudrengir hafa fengið sitt tækifæri og nú verðum við að tryggja okkar minnstu bræðrum og systrum betra líf. Mannsæmandi kjör. Aðgang að okkar þjóðfélagi á jafnréttisgrunni og er þá allt innifalið; menntun, atvinna og tómstundir svo eitthvað sé nefnt. Flokkshlýðni er nokkuð sem ekki má há okkur næstu árin. Við verðum öll að gera okkar besta fyrir Ísland næstu árin. Ég skora á málsmetandi fólk að setjast niður og bjóða sig fram til næstu alþingiskosninga; fagfólk, verkafólk, listamenn, virkjanasinna og náttúruverndarsinna. Allar tegundirnar. Sjúklingafélög hafa mörg hver tapað öllu því fé sem nurlað hefur verið saman, með sjálfboðavinnu, á undanförnum árum. Nú reynir á að stjórnvöld taki til við að veita þeim styrk til starfa áfram og sjái um að bæta þessum félögum þann skaða sem þau hafa orðið fyrir. Öflugt starf þeirra er ákaflega mikilvægt einmitt núna. Heilbrigðisþjónusta er sá grunnur sem ekki má skaða á neinn hátt. Stöndum vörð um frábæra þjónustu og bætum það sem betur má fara. Félagsþjónusta á Íslandi er í skötulíki sé miðað við Norðurlöndin. Hún er nokkuð góð miðað við Mongólíu og spurningin er: Hvaða viðmið viljum við hafa? Við búum við norrænt velferðarkerfi segja ráðamenn okkur. Þetta er einhver mesta lygi sem uppi hefur verið. Við erum langt frá því að búa við norrænt velferðarkerfi. Ég skora á ráðamenn að mjaka okkur í rétta átt í þessari þjónustu. Hættum augljósri sóun á almannafé. Dæmi um augljósa sóun er t.d. Öryggisráðið, lofthelgisvarnir og sendiráð í öllum krummaskuðum, svo eitthvað sé nefnt af gæluverkefnum veraldarfirrtra embættismanna. Áfram Ísland – stöndum saman að alvöru uppbyggingu. GS
»
13.11.2008 22:50:28 / gaui
Við munum hittast í vestur turninum, ekki austur eins og vanalega. Annars er það að frétta að ég fékk staðfest að það sem hrjáir mig er PLS eða vægasta form MND svo vitað sé. Vona að það reynist rétt. Aðgerðarleysi stjórnvalda og þögn er að verða verulega pirrandi. Hvað getur þetta fólk látið okkur hanga lengi í snörunni. Þetta er að verða jafn löng greining og tekur að pota MND í okkur! Ég vil svör og aðgerðir strax, ekki að talað sé út og suður. GS
»
09.11.2008 15:42:11 / gaui
Fór í skoðun og mælingar vegna tilraunalifsins til Grétars á LSH á föstudaginn og er þar enn þá. Kom í ljós að líklega er ég með ofnæmi fyrir nýja lyfinu og verð sennilega settur af tilrauninni. Sá sem fór með mér til NY er í góðu lagi og finnur ekki fyrir neinu svo framhaldið verður þeirra sem eftir eru. Er auðvitað drullusvektur en mun bara finna annað lyf til að éta og stuðla þannig að aukinni þekkingu á MND sjúkdómnum. Ég verð líklega inniliggjandi fram yfir mánudag en þá verða gerð á mér prófun sem gæti skorið úr um að ég sé með PLS (ekki ALS) en PLS er skásta form MND sem greinst hefur. Fundurinn í Birmingham gekk vel. Ég er nú formaður heimssamtakana og er svona að safna vopnum mínum þar. GS
»
20.10.2008 02:08:01 / gaui
Ferðin gekk vel að mestu. Aksturinn frá flugvelli á hótelið var erfiður fyrir hálsinn á mér, ósléttir vegir. Á hótelinu lentum við í vanda vegna takmarkana sem Visa hefur sett á kortin, án þess að segja neinum frá. Það hafðist þó að skrá sig inn með nógu mörgum kortum. Sunnudeginum var eitt í leti og lestur. Á morgun á ég fund með MDA samtökunum sem eru risar í velferðarmálum hér. Vona að þau gangi í heimssamtökin. Stelpurnar munu á sama tíma eiga fund með verslunum borgarinnar, mjög mikilvægan að þeirra sögn  GS
»
18.10.2008 08:17:38 / gaui
Þar sem MND pillan kemur ekki til okkar verðum við að sækja hana. Við erum 4 sem höldum til New York á næstu 4 vikum og erindið er að taka þátt í tilraun með lyf gegn MND. Ferðin er farin í skugga banka slagsmála en í okkar samanburði og forgangsröðun eru bankamál lítið mál. Sjáumst hress eftir viku. GS
»
17.10.2008 19:47:45 / gaui
Við MND félagar gefumst ekki upp þó á móti blási. Banka kreppa er eiginlega engin kreppa samanborið við lyfjakreppuna sem við búum við. Ekkert almennilegt lyf er til við MND, ennþá.
Útrás MND félaga er byggð á raunverulegri von um lækningu. Von sem ekki er áþreifanleg frekar en loftið í annari útrás, en vonin heldur okkur gangandi ansi lengi.
Með okkar þátttöku í þessu lyfjaprófi erum við að leggja okkar af mörkum til þeirra sem allra leiða leita til að finna lækninguna við MND.
Þetta gætum við ekki hjálparlaust frekar en annað. Helgi í Góu leggur okkur til rausnarlegt framlag enda maðurinn gæði í gegn. Orkuveita Reykjavíkur leggur okkur lið, Logi Bergmann golfaði hringinn í sumar og njótum við góðs af því. Dollar á mann sjóðurinn er svo hryggurinn í þessu. Taugalækningadeild Landspítala leggur til faglega þekkingu og þátttöku fagfólks þaðan við rannsóknina. Takk fyrir okkur. GS
»
Síður: 1 2 3 ... 83
|
Heimsóknir
Í dag: 37 Alls: 297032
Dagsetning
9. september 2010
|